Ég vaki í heimi,
ég vakna í öðrum.
Í öðrum helling ég hef,
í hinum svelt ég í hel.
Svona er lífið, svona er lífið.

Þú vakir í heimi,
þú vaknar í öðrum.
Í öðrum áttu þitt sker,
í hinum dregst þú í skel.
Svona er lífið, svona er lífið.

Við vökum í heimi,
við vöknum í öðrum.
Í öðrum ekkert er satt,
í hinum verra er samt.
Svona er lífið, svona er lífið.