Þú kyssir hlaupið
þegar ég miða á þig
Freistar mín og hlærð

Strýkur hnífinn sem ég
Hóta þér með, öskrar
Dreptu mig og brosir

Meðan ég hef mig allan
Við að brjóta þig niður
Þú byggir þig upp og ögrar mér

Ég veit ekki orð sem lýsir því hatri
Því hatri sem leynist inní mér
Því hatri sem dregur samband mitt áfram
Það hatur sem knýr ást mína á þé