Get engan vegin fundið titil Talaðu við mig,
Og segðu mér.

Talaðu við mig-
Og þú getur séð
Hvað það er auðvelt.

Hvernig eigum við að geta allt,
Ef þú getur ekki sagt mér hvernig þér líður.
Ætlarðu að gera eitthvað?

Þó að heimurinn fyrir þér sé að hrynja,

Talaðu við mig,
Og segðu mér svo.

Orðin þín,
Svo gegnumköld,
Og meiningarlaus.

Veistu afhverju ég fór?

Af því að ég tókst á við,
Og horfðist í augu við sársaukann.

Fuglarnir gráta okkur bæði,
Tunglið minnir mig á andlitið þitt.

Ég get ekki sofið,
Enn minnir tunglið mig á andlitið þitt.

Sólin segir mér sögur,
Segir að fuglarnir gráti okkur enn.

Hvað getum við gert?

Sólin sest á hjartað mitt.

Núna get ég alveg séð
Sólina faðma mig

Og tunglið sýnir mér sársaukann
Sem ég er alltaf að reyna að kyngja.
- týna.

Talaðu við mig,
Svo að ég sjái að ég er ekki alltaf ein.



Ellena©
Ekkert sem ég skrifa er í samhengi ?