Ég auglýsi eftir ungu ljóðskáldi

Hann er 26 ára
og gengur undir dulnefninu Cruxton

Ég sá hann seinast í Hagkaup
en þorði ekki að heilsa

Þar á undan sá ég hann í Elliðarárdalnum
að prófa nýju myndavélina sína

Um daginn var ég við húsið hans
og allt rifjaðist upp fyrir mér

Allar góðu minningarnar

strákur sem virkilega bar virðingu fyrir mér
og hafði trú á mér

Þegar ég var með honum fannst mér ég ekki
einskis virði

en tilfinningar hans til mín voru
svo yfirþyrmandi sterkar

hann gerði sér of miklar væntingar
hann vildi fá mig strax

ég sagðist þurfa meiri tíma
en þá lokaði hann á mig

mér fannst það sárt
en ég vissi að það var miklu sárara fyrir hann

ég eyddi símanúmerinu hans því að hann svaraði mér aldrei
en myndi hann svara mér í dag?

mig langar ótrúlega að vita
hvernig hann hefur það

ég auglýsi eftir gömlum vini