Ó kæri vinur, þú sem kærleik flytur
kveddu hinn sanna ástvin þinn með hlýhug
Lífi hans lýkur en hjá þér hann situr
lýsir þér leið og trega vísar á bug

Styrk þú finnur með þínum æðri anda
því þú átt ekki að þola þetta ein
Himinn og höf eru á milli landa
en hér ert þú, saklaus sál og hjartahrein

Ekki segja að þetta sé endirinn
englarnir sjá um að hugsa vel um hann
Blá tár renna á raunamædda kinn
Rjúkandi eldur í brjóstinu rann

Leiðir ykkar munu aftur saman liggja
Lífið er raun og það ber að þiggja
Ég finn til, þess vegna er ég