Raunveruleikinn
Heyri hvellina, sé blóðið
Sit ein í felum, get ekki grátið
Vil ekki deyja, er enn svo ung
Held fast í vonina
Vonina um að mamma komi nú brátt
Og vekji mig
Innst inni veit ég að það mun ekki gerast
Veit að þetta er ekki draumur

Fólk deyr og fólk drepur
Börnin deyja og borgirnar hrynja
Veit að þetta er raunveruleikinn
Sé fjölskyldu mína deyja
Við þá sjón er eins og ég vakni
Er ég næst?