Frá mínu góða hjarta,
skín ástarvonin bjarta.
Stjörnurnar ei kvarta
að fá vonarneista að skarta.

Ást er dagur, ást er nótt,
hjarta vor slær títt og ótt.
Magnar slátt við fyrstu sýn,
er fengum okkur mat og vín.

Sólargeisli ertu bjartur,
þú ert minn besti lífsins partur.
Betri helmingur lífsins bjarta
stjörnurnar þig geislum skarta