Sængurgjöf

Sit ég hér með hvíta sokka,
litla skó og ljósa lokka.
Bíð að fá frænda minn að sjá,
bíð eftir að fá hann að sjá.

Sjáðu drenginn sæll og sætur,
grætur hann mikið um nætur?
Sjáðu bara hvað hann gefur þér,
sérðu það sem hann fær frá mér.

Ég gef þér hér hvíta sokka,
litla skó til að skokka.
Þessi gjöf hún er frá mér,
þessi gjöf mun gagnast þér.