Hvert hvarf litla ástin mín
Hvað varð til þess að þú fórst
Liggur hér við hlið mér
en einhvern veginn ert það ekki þú

Ég sakna þín svo mikið
Brosin og kossarnir
Hamingjan og hlýindin

Nú er samviskan þín flogin burt
og ilmurinn af þér fór með
Það sem eftir stendur er myndin af þér
og tómleikinn að innan

Ég elska þig svo mikið
Glampa augna þinna
ástin og umhyggjan
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"