Elsku afi Elsku afi

af hverju?
af hverju fórstu?
Af hverju fórstu frá mér?
Nú felli ég tár og græt mig í svefn,
af því að
þú ert farinn.
Tárin gera sængina blauta
og ég græt mig í svefn.
Elsku afi minn góði,
vonandi líður þér vel
eftir að ég sendi þér öll tárin
sem ég hef fellt,
fyrir þig.

Ég skrifa niður
ljóð til þín
og vona að þú sjáir það
einhverntímann,
ef guð er góður.
ef þú sérð það,
þá veistu að ég hugsa alltaf um þig,
og mér þykir vænt um þig
þó að ég hafi ekki náð að segja þér það.
Ég bið á hverju kvöldi
til guðs
um að þér líði vel
og að þú finnir friðinn
að þú sérst alsæll
á himnum.

Ég sakna þín
og hugsa um þig daglega
þegar ég sé gamla dótið þitt
og húfuna sem þú varst vanur að vera með,
og þá langar mig mest í heimi að gráta.
Láta tárin falla
til heiðurs minningu þinni,
og þínu lífi.
Ég sakna þín
og græt.

Elsku afi,
ég sakna þín.