Ég er svanur,
svanurinn sem rær tignarlega til þín á nóttinni
og stígur fislétt í hjarta þitt.
Þú finnur fiðring leika um vit þín
og fegurðin verður áþreifanleg.

En ég er bara svanur og ég les:
Veiðitímabilið er hafið!
Og skotið ríður af.