Ég, litla blómið, vakna,
rís úr rekkju,
horfi í kringum mig og sé
sumar, sumarið er komið.


En ég er varla búið að teygja úr mér,
og þá, já og þá,
endar stutt ævi mín,
ég er traðkað niður.