pælingar í ljóðformi… gjörið þið svo vel


“Hvernig veit ég að þú ert hér
þó ég sjái þig hvergi?
hvernig veit ég að þú sérð mig
þegar ég sé þig ekki ?
hvernig veit ég um tilvist þína
ef ég hef aldrei heyrt á þig minnst?
Þú hlýtur að vera til
eitthverstaðar á eitthverjum tíma
eitthverstaðar og veist ekki um mig
eins og ég veit ekki um þig.”

tvær sálir sem aldrei áttu samleið
þó var þetta hin fegursta ástarsaga
sem heimurinn hefur kynnst
því trúin
trúin á það fjarlæga, ókunnuga,“rétta”
trúin tengdi þau böndum
böndum sem ná út fyrir líf og dauða

Við sjáum ekki allt
við heyrum ekki allt
og ekki allt fáum við nokkur tímann að vita
þó er það sem við sáum aldrei,hlýddum aldrei á og vissum aldrei um,
það er samt sem áður til staðar.