Spenna, augu mætast,
Spenna, varir mætast…
Snertingar, þrá, spenna.
Áfengið hafði sín áhrif.

Svo í morgun,
var þetta allt liðið hjá.
Eftirsjá, augu mættust.
Eftirsjá, afhverju?

Og einhvernvegin,
Gátum við hvorug,
fengið okkur til að segja
“rosalega vorum við full”
Því innst inni vissum við það,
að okkur ætti ekkert eftir að líða betur,
Því jú, það er engin afsökun.
__________________________________