Gefðu mér góðan grið
Gerðu það, sýndu styrk
Viltu veita mér þann grið
að vera ekki svona myrk

Hér skortir ljós og hlýju
Horfið er góða veðrið
Ég vil vakna að nýju
vaxa og leita á ný mið

Ég þrái það eitt, vinur minn
að þjóta með vindinum alein
í skjóli við endalausa sjóinn
og syngja síðan hjartahrein

Skjól, í huga mínum er sár
segðu mér, get ég fundið þig?
Ég vil forðast allt fár
og finna út hvað angrar mig

Svo ég snúi mér aftur að þér,
stelpa sem skilur ekkert
Þá þarf ég að vera með sjálfri mér
það verður ei til einskis gert
Ég finn til, þess vegna er ég