Blaðið er komið,
ég sef þó, en stari út í loftið.
Hver er tilgangurinn , hvað er “pointið” ?
Blaðið er komið,
ég ríf mig upp frá værum svefni,
var þetta þess virði ?
Fyrsta blaðsíðan segir lítið,
segir mér ekkert um mitt eigið líf.
Ég hefði kannski bara átt að sofa,
en þá hefði ég ekki fengið að njóta,
fyrsta kaffibollans með blaðinu.