Ég er nú bara nokkuð ánægð með þetta ljóð hjá mér…en ég er enn byrjandi :)

ótrúleg óskhyggja þetta nú var,
ógurlegur andvari á mig dynur.
ekkert er eins og á staðnum þar,
eða þegar hjartað mitt hrynur.

Brotið hjarta brosir ei aftur,
né ber sanna ást að nýju,
en ekki mun úti allur kraftur,
er finnur þú svo mikla hlýju.

Skrifaðu sannar ástarsögur,
sögulegar ástir lifa,
eins og jörðin er nú fögur,
heldur tíminn áfram að tifa.