Komdu með mér
Við stígum trilltan dans
Dönsum saman dansinn okkar
Látum tilfinningar taka völd
Leyfum hjartanu aðeins að ráða
Gleðjumst yfir litlum gjöfum
Tökum við stórum vonum
Göngum saman gegnum eilífðina
Verum hreinskilin
Og leggjum öðrum lið
Allt þetta fáum við aftur
Er við erum illa hrjáð
Lífið er of dýrmætt
Til þess að kasta því á glæ
Gerum enga heimska hluti
Lifum lífinu með stæl.