Taktu mig upp til að láta mig falla
gerðu það oftar,
gerðu það oftar fyrir framann alla.
Allir sjá það ekki,sjá ekki hvað ég meiddi mig!

Brjóttu mig til að raða mér samann
gerðu það vittlaust,
gerðu það vittlaust fyrir framann hann
Hann sér það ekki, sér ekki brotið sem mig vantar!

Dreptu mig í smá stund til að vekja mig til lífsins
gerðu það bara,
gerðu það bara fyrir framann hana
Hún sér það ekki, að ég vil ekki vakna!

Drekktu mig svo þú getir ælt mér
gerðu það þá,
gerðu það þá fyrir þig
Því þú sérð ekki, ég er að eitra fyrir þér!
tjáningu minni er hér með lokið!