Ég er eitruð ör
á eilífðarinnar streng.
Ég er æskunnar ólgandi fjör
og ellin bogin í keng.

Ég er alheimsins hlæjandi engill
sem öllum villir sýn.
Ég er hinn sæli svefngengill
sem einmanna bíður þín.
Gríptu karfann!