Ana á móti
almættinu
handviss um að
hafa betur,
ber á brjóst
og bít á jaxl
áður en ég
eyðist upp
í illum eldi
sem brennur innan
og breytir mér
í brúðu,

sem strengjalaus
flækir sig
í fimum fingrum
stjórnandans.
—–