í dag rignir
sorgin hlaut að sjást
sál mín varð að þjást
-ég signi mig í tárum
barnsleg von sem brást
-heimur í blæðandi sárum


I dag skín sól
risin er veröld á ný
horfin hin dimmu ský
-bölsýni heimsins hafna
sálar háski fyrir bý
-ég finn von mína dafna(á ný)


I dag ég skil
finn skaparans mikla mátt
höfuð mitt ber ég hátt
-sé sannleikans leyndarmál
tek guð og menn í sátt
-veit að lífið hefur sál