Ég stend hér í skugganum,
í fjarska sé ég sólina skína á hraust andlitin

Ég sé hana skína á þig

Ég get mig hvergi hreyft þótt mig langi til þín,
þar sem sólin skín

Þetta er minn heimur,
það er annað sem bíður mín,

Sólin mun aldrei ná til mín