Er ég gref mig í hamingju
og kafa eftir brosi
Geri ég mér grein fyrir…
Ég er spegilmynd óttans,
óttans við það að missa þig.
Þú ert allt það sem ég vil
og allt það sem ég þarf.

Frosið brosið og bráðnað hjartað,
grunnur þeirrar hamingju
er ég öðlast þér við hlið.

Þú ert minn,
það ég finn
og ég aldrei mun þér sleppa.
Eins manns rusl er annars manns fjársjóður…