Veruleiki innan veruleika
þar sem óttinn týnist
innan kærkominna boðefna
sem fyrnast eftir
þúsund andartök og
veruleikinn sem var
hættir að vera til
og skilur eftir sig
auðn óboðinna tilfinninga.