úff hvað ég er ömurlegur gæji,
ég segi öðrum fyrir verkum með samviskuna
á heilanum en gleymi að kveikja á
meðvitundinni í smá stund til að leysa málið.
Ég bora gat í vegginn til að fá
súrefni en gluggarnir eru opnir,
helvítis súrefni og langlífi munu verða minn
dauðdagi.
Ekki uppá gátt og ekki smá rifu, hvaða
fjandans afskiptasemi er þetta.
Dreptu í gamla lífinu,
glæddu mig nýju.
“she's the tear that hangs inside my soul forever”. (Buckley).