Ég reyndi að fara varlega
í hrifningu minni á þér
en þú gerðir það ómögulegt
Ég reyndi að búast ekki við miklu
en innst inni gerði ég það

Ég hef getað lifað án þín allan þennan tíma
en mér hefur samt liðið misjafnlega vel
Lífið væri betra ef þú værir við hlið mér
ef ég gæti verið hjá þér
Ég efast um að það verði nokkurn tímann að veruleika
En það er gott að ímynda sér það

Mig dreymir um að við hittumst á ný
á einhverjum góðum stað
og verðum eitt
eins og kvöldið góða í sumar
þegar við sátum saman á tröppunum
og engin þörf var á orðum

Ég man þegar við tvö keyrðum við sjóinn og sólina
Það var svo ljúft
Hvernig gat strákur eins og þú
haft áhuga á stelpu eins og mér?

Þú ert örugglega sá eini
sem hefur látið sjá þig með mér
og meint eitthvað með því

Þú ert sá eini sem ert mér meira og annað
en einhver ómerkileg fortíðarhugsun
Þú ert svo miklu meira en það
Falleg sál sem erfitt er að gleyma

Endilega segið hvað ykkur finnst um þetta ljóð. :)
Kveðja,
friend
Ég finn til, þess vegna er ég