nýtæmt staupglas skellur á borði

það er bögg

einhver liggur

tvíbrotinn kjálki og sprungið auga

vaknað í þynnku

og vondri lykt

fötin á gólfinu

rispaður hnúi

það var stuð í gær


mánuðir líða

“komdu að borða”!

spjall við matarborðið

“já, rosalegt með manninn þarna fyrir austan”

læri og brúnaðar kartöflur

grænar baunir og rauðkál

“réttu mér sósuna”

“mamma, ég þarf að mæta til yfirheyrslu hjá lögreglunni…”