reyndi að teygja mig í sólina
en komst svo að þeirri staðreynd
eftir hálsríg
vöðvaslit
og höfuðverki
að það vantaði 149.999.999 kílómetra
og 997,3 metra upp á…

teygi mig þó áfram í sólina
tunglið
stjörnurnar
norðurljósin
eða eitthvað annað fagurt og fjarlægt
því leiðin þangað
er auðveldari
auðrataðri
og fljótfarnari
en aftur inn að hjarta þínu…

tók eitt hliðarskref
og annað
en áttaði mig aldrei
á gífurlegri lengd þeirra…



teygi mig áfram í sólina
tunglið
stjörnurnar
norðurljósin
eða eitthvað annað fagurt og fjarlægt
sem gæti kannski huggað mig…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.