Hver sá maður sem dæmir mig
dæmir fordæmda sál
því sál min er ei lengur til staðar
til að vera rifin úr mér
horfin á braut
braut sem er mér ókunnug
því ég veit ei hvar vegur svarthols lífsins endar
sálarlaus er ég dofin
græt mig í svefn án tára
finn ekkert
ekkert til staðar
finn ei lengur fyrir þeim nístandi sting
sem ég hef ætíð lifað við
finn ei fyrir þeirri brennandi þrá sem mér finnst ég ætti að finna

ég vil brenna frekar en lifa í kuldanum