Brugðið var brandi.
Brast mitt hjarta.
Draup þá dreri
er drukkinn var.
Sendill satans
sótti minn anda
í Hallir Heljar
Heigull kom

Segð þú mér Satan,
synda drottinn.
frá tilgangi tilvistar,
tíma og rúms.
Hve gammall er guð
góðra manna.
Ganga um geimverur
á gangstéttum jarðar?

Dæsti þá Djöfullinn
djúpum rómi.
Spurningar sprengja þín
spaugileg er.
Dæmigerð della
dauðra manna.
Halir ei hugsa
helvíti í.