Afnám hljóðs og texta

hristist ekki, hljómar ei
heyrist ekki neitt
enginn texti er frá mey
og mér þykir leitt

————————————-

Gríman gráa

líða tímar lengjast stundir
leiðist gríman gráa
platar ei né léttir lundir
líðan bætir fáa

miklu betra' að sýna sig
siginn lúinn leiðan
hvort það áhrif hafi' á þig
hef ég ekki heiðan