Út um gluggann glápi ég
á bíla, fólk og fjöllin
en allt í einu sé ég þig
fögur, lipur, lævís
mig langar að faðma þig
kyssa þig og knúsa
þú ert litla krúttan mín
mín elsku litla kisa

inn um gluggann horfir þú
á blómin, fólk og fleira
allt í einu sérð þú mig
langar upp að koma
vantar nudd á mallann þinn
og kannski líka eyrun
soldið þyrst og soldið svöng
hleypur inn til mín

Mettar báðar erum nú
eftir kattamat og snúða
liggjum saman sófa í
dottum dáldið saman
ég klóra þér á mallanum
og líka á eyrunum
í staðinn fæ ég lítið mal
tilveran er fullkomin
Just ask yourself: WWCD!