Hugfangnar myndir
í sorgmæddum römmum
úr buguðu stáli
á kvöldum vegg
sem umlukið er hatursfullum trjám
sem eru í illum garði
umluktum óttasleginni girðingu
sem neitar
að hleypa sannleikanum út,
þar hanga þöglar myndir
eins og ekkert hafi í skorist.