Nú sleppi ég þér,
litli fugl
sem ég hef varðveitt svo lengi
ekki þorað að sleppa
njóttu þess
að fljúga hátt
og hratt
litli vinur
svo þú heyrir ekki
raddirnar fyrir neðan þig
sem tala um hvað þetta sé væmið ljóð