Geimskip

ég og þú
saman við eigum
saman við erum
ég er skrifarinn og þú ert lesandinn
ég er karlinn þú ert konan
ég er bíllinn þú ert dekkin.
ég þarfnast þín og þú mín
saman erum við allt
en í sundur erum við ekki neitt
nema skítug rykug dekk
og bíll með rispaða framrúðu

nú skulum við…saman
ég, skrifandinn
og þú lesandinn
ég bíllinn
og þú dekkin
skrúfa þig undir mig
og halda saman í langferð
netsins sem ofið er úr endalausum vegum
og gatnamótum.
förum ekki ég
förum ekki þú
förum við
bíll og dekk
lesandi skrifandi.


Það á aldrei að sparka í liggjandi mann….
bara labba hljóðlega framhjá