Hún var með dökka lokka
sem liðuðust um háls og herðar
rannsakandi snertandi augu
sem sáu allt að mér fannst,
ég roðnaði og langaði helst
að fela óörugga ástleitna fingur
í þessu lokkaflóði
tínast og aldrei koma aftur.