í dögginni glitrar á
rauðleitar hlíðar dalsins
skornar og lokkandi hlíðarnar
mjúkar og meirar syngja
til mín fögur orð

djúpt í dalnum
undir sprungu
býr allur hitinn, öll ólgan
sem þeir sækjast eftir
þar á meðal ég