jæja, kallinn kominn heim(enn í glasi:))
kyssti eina,
með villt græn augu
og litlar axlir
gaman í fyrstu
en kossinn dróst á langinn
og varð ákafari
heitari
fannst ég vera að kafna
stóðum ein eftir á dansgólfinu
hvert ætlaði hún með þetta?
hræðslan skreið upp hrygginn
og gekk berserksgang í hausnum á mér
átti þetta að vera kossinn endalausi?
reif mig lausann og forðaði
mér út í frelsið

frelsið var ískalt og einmanalegt

nú sit ég einn
svitinn þornaður á enninu
losa bindið,
næ andanum almennilega
og spái
ætli hún hafi fundið annan
til að eignast með börn og bílskúr…