Heiðin unaðs undur var
upp ég fór í geima
lækir drjúgir dreypa’ í mar
dropar minna steina

Aldrei aftur? Enginn veit


Hvergi farið angur er
undir lás og slá
laust úr draumi dreyminn fer
dreginn burtu frá

Allt er hljótt, ekki píb


Hvenær það ég eignast aftur
umber get það ei
leitt finnst ei ég duga djarfur
drukknar Freyjar fley?

Allt að engu? Ekki trúi