Hann horfði á mig rannsakandi augum,
ert þú þessi grímulausi bófi
sem ert að fara með þorpið á taugum,
læðist um í næturmyrkrinu og gónir
upp í loftið.

JEG! ég er nú bara að leita að
augunum hennar Sigggu Sveins þarna uppi
meðal stjörnuskara.

Ja hérna þið þessir
draumóra menn og utanveltu kónar.
Þú ættir nú að vita að augun voru grafinn
með henni suður í kirkjugarði. Svo blessaður
vertu ekki að voma þetta lengur. Það er jú
fullt hús af fiski í frystihúsinu á morgun.