Ég sit við gluggan
og bíð eftir vin.
Ég bíð eftir Fugli
sem er fullur af rugli.

Ég á vin sem ég sé
sem ég skil sem ég er.
Ég er sá sem ég var áður.

Taktu mig fugl
fljúgðu á brott
með mig í fanginu
sofandi rótt.