Spilin á borðinu
eru spjót í gegnum augun
voru þyrnar eru
spjót eru sverð
og hvað er blóð og
hvað er tár sull
útþynnt og jörðin
sem fætur mínir stóðu
á treystu á verður
mauk verður leðja
og ég sekk og mig langar
að sökkva finna botninn
byrja að klifra upp en það
er enginn botn enginn grundvöllur
hvergi bara útþynnt mauk tár
blóð sull
leðja