Pilturinn og stúlkan
lítil börn sem kynnast fljótt
hugsa um hvort annað
bæði dag og nótt
Æskuástin er komin á stjá
en það vilja sumir ekki sjá
og reyna því að stía þeim í sundur

En ekki kvíða neinu
ástin mun bjarga öllu illu
Ástin sigrar allt
á endanum

Pilturinn og stúlkan
fara svo á aðra slóð
bera sorg í leyni
á við heila þjóð
Þó aðskilin séu þau,
eru hjörtu þeirra á sama stað
Þrátt fyrir allt, alveg sama hvað
Ég finn til, þess vegna er ég