Allir fuglar sumarsins
eru flognir á braut
Í öræfakyrrðinni
er ég einn með
nöktu landinu
og minninguna um
kossana á vörum mínum.
Skyldu þeir verða
eins hverfulir
og fótspor heiðargæsanna
í fyrstu snjóum
haustsins.