Þegar samtíðin tengist fortíðinni
og ég sný mér í hálfhring frá hafinu.
Hengjast bjöllur himinsins
á herðar mínar.

Í þungum þönkum
þerra ég sálartetrið.
Tindrandi foss af tárum
vætir jörðina.

Jörðin drekkur blóð hjarta míns
og upp vex tré tilfinninga minna.
Tréið ber ávöxt hormóna heilans
fyrirgefningu og sátt.