Fyrir tvö hundruð árum
lá hann á stígnum
hvíta kápan hans skalf
í logninu.
Svartur eilífðarskugginn
gein við honum.
Hann kvíslaði
Jesús Kristur
Jesús Kristur…
Og jafnvel í dag
þegar rignir
svellur steinn þessi
af blóði
og hryllilegu
grænu
yfirþyrmandi
minnugu grasi
sinan
hvíslar að
grasnálinni
Jesús Kristur…
Fisksalinn Ottó