Ég hef bragðað biturleikan,
og bundið hann niður.
Ég hef heilsað hamingjunni,
og hleypt henni inn.
Ég hef sæst við samviskuna
og sofið á henni.
Ég hef virkjað foss fegurðinar
og fundið frið.
Ég hef frosið fastur við ískaldan raunveruleikan
og fylgst með vorkomunni.
Ég hef pússað persónuleika minn
og passað geðheilsuna.
Ég hef þýtt þúsundir tilfinninga
sem þeysast um líkama minn.
En ég hef ekki ennþá skilið ástina.