Sorgleg ásýndum er ég nú
Það eina sem ég hugsa um ert þú
Tár í augum mínum koma á stjá
Því þú fórst mér frá

Þér fylgja margar minningar
og þær skilja eftir sig djúpt far
Ég bíð þess að eitt stjörnukvöld
taki ástin völd

Ég vil ekki enda svona
eftir þér ég bíð og vona

Tilfinningar yfirþyrma mig
Svona er að hugsa bara um þig
Það er ólýsanlega sárt
Hjarta mitt á bágt

Nú ég hef misst allan mátt
Vilt þú taka við mér í sátt
Þannig á það að vera
laust við trega
Ég finn til, þess vegna er ég