Undir drukknuðum augum
vex skuggi.

Hann sækir að
frá tengdum stað
alltaf klukkan tíu

Hlýjan á að vera ljúf
en verður það aldrei
eftir… hann…

Hún reynir að gleyma
á hverjum degi eftir mat
með eitrinu
hún
sér
samt
glimta í hann

Rósin kom til hennar í pósti
og var föst við blaðið
sem greip blóðdropa fortíðarinnar
með þrem orðum “Kem klukkan tíu”

Hann kom aldrei
Hann var alltaf
Undir drukknuðum augum